Tvær sýningar opnaðar í Pakkhúsinu í Ólafsvík

Tvær sýningar verða opnaðar í Pakkhúsinu í Ólafsvík á morgun, fimmtudaginn 25. júní klukkan 15. Þar verður annars vegar varpað ljósi á verslunarsögu Ólafsvíkur og hins vegar líf og störf skáldsins Jóhanns Jónssonar. Sýningin um verslunarsögu Ólafsvíkur er unnin og sett upp af Sveini Þór Elínbergssyni og Guðlaugu Dröfn Gunnarsdóttur. Á sýningunni er saga verslunar í þorpinu rakin með myndum og öðrum sögulegum heimildum.