
Efri hluti vatnsrennibrautarinnar hefur verið endurbyggður. Ljósm. Sveitarfélagið Stykkishólmur
Endurbætt vatnsrennibraut tekin í notkun í Hólminum
Gestir sundlaugarinnar í Stykkishólmi geta nú notið endurbættrar vatnsrennibrautar þar sem bæði öryggi hefur verið bætt sem og upplifun aukin. Helsta breytingin felst í því að efri hluti brautarinnar hefur verið yfirbyggður, sem gerir ferðina niður jafnari og veitir notendum meira skjól. Jafnframt hefur verið komið fyrir svokölluðum dagsbirtuhringjum sem hleypa náttúrulegri birtu inn í brautina og skapa fjölbreyttari og litríkari upplifun á leiðinni niður.