Fréttir

true

Blíða í veðurkortunum fyrir næstu daga

Veðurstofan spáir hægri austlægri eða breytilegri átt í dag, léttskýjað sunnan- og vestanlands, en rigning með köflum seint í kvöld og nótt. Skýjað annars staðar og smá væta af og til. Norðan- og norðaustan 5-13 m/s á morgun. Léttir víða til á Suður- og Vesturlandi, en þokusúld eða dálítil rigning fyrir norðan og austan. Hiti…Lesa meira

true

Færri Íslendingar á faraldsfæti

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll námu 163 þúsundum í maí samkvæmt mælingum Ferðamálastofu, sem er svipaður fjöldi og í sama mánuði í fyrra. Bandaríkjamenn voru tæplega þriðjungur allra brottfara. Brottfarir Íslendinga voru um 59 þúsund í maí, 11% færri en í sama mánuði árið áður, en uppsafnað frá áramótum hafa Íslendingar farið 14,5%…Lesa meira

true

Sláttur er hafinn í Borgarfirði

Í gær hófst sláttur í Norðtungu í Þverárhlíð. Eftir því sem næst verður komist er það fyrsti sláttur sumarsins í héraðinu. Blaðamaður Skessuhorns hitti í gærkveldi Ísak Elí Yoakum vélamann í Norðtungu þar sem hann var að ljúka slætti á tíu hektara spildu næst Þverá. Verkið vannst hratt enda beitti hann öflugri 270 ha New…Lesa meira

true

Gott atvinnuástand og vaxandi ferðaþjónusta ástæða fjölgunar

Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ var spurður um hverju hann þakkar hlutfallslega mikla fjölgun íbúa á síðustu sex mánuðum, eins og fjallað er um í frétt hér að neðan. „Hingað hefur fólk verið að flytja í vetur og það má fyrst og fremst þakka góðu atvinnuástandi. Sjávarútvegur er að skila okkur um helmingi útsvarstekna, er…Lesa meira

true

Skessuhorn gefið út degi fyrr í næstu viku

Að óbreyttu hefði útgáfudag Skessuhorns í næstu viku borið upp á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Af þeim sökum verður blaðið gefið út degi fyrr, þriðjudaginn 16. júní. Síðustu forvöð að skila inn efni og auglýsingum er til hádegis mánudaginn 15. júní. Æskilegt er að það berist fyrr.Lesa meira

true

Upplestur ljóða í Snorrastofu

Laugardaginn 13. júní kl. 14:00 verður boðið upp á upplestur ljóða ásamt borgfirskum fróðleik í bókhlöðu Snorrastofu. Þar munu fimm ljóðskáld lesa úr verkum sínum. Dagskráin er eftirfarandi: Garibaldi (Garðar Baldvinsson) hefur dagskrána með stuttu erindi um langömmu sína sem bjó lengstum í Borgarfirði og fæddi þar átta börn en aðeins tvö lifðu. Anna Björg…Lesa meira

true

Íbúafjöldi potast upp í öðru hvoru sveitarfélagi

Á Vesturlandi var íbúafjöldi 1. júní síðastliðinn 18.651. Fjölgað hefur um 68 manns á sex mánaða tímabili frá 1. desember 2025. Athygli vekur að langmest fjölgun íbúa hefur verið í Snæfellsbæ á þessu hálfa ári. Þar er íbúafjöldi nú 1.793, fjölgaði um 42 á tímabilinu sem jafngildir 2,4%. Í Stykkishólmi var næst mest hlutfallsleg fjölgun…Lesa meira

true

Brynja hlaut hæsta hæfileikadóm sem hryssa hefur fengið

Á kynbótasýningu á Rangárbökkum í gær hlaut hryssan Brynja frá Nýjabæ í Borgarfirði hæsta hæfileikadóm sem hryssa hefur fengið og næst-hæsta hæfileikadóm sem gefinn hefur verið, en þann hæsta hlaut Sindri frá Hjarðartúni þegar hann fékk 9,38 í einkunn á Landsmóti árið 2022. Eiðfaxi.is greindi frá. Fyrir hæfileika hlaut Brynja 9,35 með einkunnina 10,0 fyrir…Lesa meira

true

Metfjöldi mun útskrifast frá Bifröst á laugardaginn

Háskólahátíð Háskólans á Bifröst verður haldin í Hjálmakletti í Borgarnesi, laugardaginn 13. júní, kl. 11:00. Alls verða 279 nemendur brautskráðir á hátíðinni; 39 nemendur úr Háskólagátt, 65 úr grunnnámi og 175 úr meistaranámi. Ef litið er til einstakra deilda háskólans, þá verða samtals 156 nemendur brautskráðir úr viðskiptadeild, 25 úr lagadeild og 59 úr félagsvísindadeild.…Lesa meira

true

Land veit ég langt og mjótt – ferðasaga

Ferð starfsfólks FVA og maka til Ítalíu 1.-6. júní 2026 Fjölbrautaskóli Vesturlands hefur lengi verið í öflugu samstarfi við skóla í Evrópu þar sem nemendur og kennarar héðan heimsækja skóla erlendis og kynna sér skólastarf og skólamenningu. Á móti koma síðan nemendur og kennarar erlendis frá í heimsókn í skólann okkar. Síðastliðinn vetur heimsóttu okkur…Lesa meira