Brynja frá Nýjabæ en hryssuna sýndi Brynja Kristinsdóttir. Ljósm. Eiðfaxi / Óðinn Örn Jóhannsson

Brynja hlaut hæsta hæfileikadóm sem hryssa hefur fengið

Á kynbótasýningu á Rangárbökkum í gær hlaut hryssan Brynja frá Nýjabæ í Borgarfirði hæsta hæfileikadóm sem hryssa hefur fengið og næst-hæsta hæfileikadóm sem gefinn hefur verið, en þann hæsta hlaut Sindri frá Hjarðartúni þegar hann fékk 9,38 í einkunn á Landsmóti árið 2022. Eiðfaxi.is greindi frá. Fyrir hæfileika hlaut Brynja 9,35 með einkunnina 10,0 fyrir samstarfsvilja og 9,5 fyrir brokk, skeið, fegurð í reið og fet. Fyrir sköpulag hlaut Brynja 8,19 og í aðaleinkunn 8,94.