
Færri Íslendingar á faraldsfæti
Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll námu 163 þúsundum í maí samkvæmt mælingum Ferðamálastofu, sem er svipaður fjöldi og í sama mánuði í fyrra. Bandaríkjamenn voru tæplega þriðjungur allra brottfara. Brottfarir Íslendinga voru um 59 þúsund í maí, 11% færri en í sama mánuði árið áður, en uppsafnað frá áramótum hafa Íslendingar farið 14,5% sjaldnar til útlanda.