Í maí varð 51% fjölgun gesta milli ára á tjaldsvæðið á Hellissandi. Ljósm. úr safni

Gott atvinnuástand og vaxandi ferðaþjónusta ástæða fjölgunar

Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ var spurður um hverju hann þakkar hlutfallslega mikla fjölgun íbúa á síðustu sex mánuðum, eins og fjallað er um í frétt hér að neðan. „Hingað hefur fólk verið að flytja í vetur og það má fyrst og fremst þakka góðu atvinnuástandi. Sjávarútvegur er að skila okkur um helmingi útsvarstekna, er gríðarlega öflugur hér í Snæfellsbæ, en ferðaþjónustan er alltaf að bæta við sig.“