Mest hefur fjölgað í Snæfellsbæ á undanförnum sex mánuðum. Myndin er frá hafnarsvæðinu í Ólafsvík. Ljósm. mm

Íbúafjöldi potast upp í öðru hvoru sveitarfélagi

Á Vesturlandi var íbúafjöldi 1. júní síðastliðinn 18.651. Fjölgað hefur um 68 manns á sex mánaða tímabili frá 1. desember 2025. Athygli vekur að langmest fjölgun íbúa hefur verið í Snæfellsbæ á þessu hálfa ári. Þar er íbúafjöldi nú 1.793, fjölgaði um 42 á tímabilinu sem jafngildir 2,4%. Í Stykkishólmi var næst mest hlutfallsleg fjölgun á tímabilinu. Íbúar þar eru nú 1.359, fjölgaði um 1,3%, eða um 17 íbúa. Á Akranesi búa flestir, íbúum þar fjölgaði um 33, eða 0,4%, eru nú 8.616. Íbúafjöldi í Eyja- og Miklaholtshreppi stóð í stað, eru sem fyrr 124.