
Sláttur er hafinn í Borgarfirði
Í gær hófst sláttur í Norðtungu í Þverárhlíð. Eftir því sem næst verður komist er það fyrsti sláttur sumarsins í héraðinu. Blaðamaður Skessuhorns hitti í gærkveldi Ísak Elí Yoakum vélamann í Norðtungu þar sem hann var að ljúka slætti á tíu hektara spildu næst Þverá. Verkið vannst hratt enda beitti hann öflugri 270 ha New Holland dráttarvél og sláttuvélar voru bæði að framan og aftan. Vinnslubreiddin var því um sjö metrar. Nautgripaeldi er í Norðtungu og sagði Ísak að þessari kraftmiklu töðu af fyrsta slætti verði rúllað strax í dag og gefin nautum sem komin eru fast að sláturstærð.
Ísak Elí segir að framundan sé heyskapur á alls 276 hekturum á sex jörðum. Auk túna í Norðtungu muni hann heyja á jörðunum Hamri og Arnbjargarlæk í Þverárhlíð, Brúarreykjum í Stafholtstungum, Stóra Kroppi í Reykholtsdal og Síðumúla í Hvítársíðu. Auk heyskapar á þessum jörðum segist Ísak taka að sér heyskap í verktöku fyrir fleiri bændur. Þessi tæplega tvítugi vélamaður er því hvergi banginn að taka að sér verkefni og nýta vélakostinn.
Uppfært kl. 14:15:
Eftir að fréttin fór í loftið í dag hér á vefnum barst Skessuhorni ábending um að sláttur hafi einnig hafist á Kjaransstöðum í Hvalfjarðarsveit í gær. Mögulega víðar án þess að við vitum um það.
Nú í dag eru síðan fleiri bændur búnir að slá, enda veðurspáin með ágætum og ekki eftir neinu að bíða þar sem sprettan er orðin nægjanleg.
