
Skessuhorn gefið út degi fyrr í næstu viku
Að óbreyttu hefði útgáfudag Skessuhorns í næstu viku borið upp á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Af þeim sökum verður blaðið gefið út degi fyrr, þriðjudaginn 16. júní. Síðustu forvöð að skila inn efni og auglýsingum er til hádegis mánudaginn 15. júní. Æskilegt er að það berist fyrr.