Metfjöldi mun útskrifast frá Bifröst á laugardaginn

Háskólahátíð Háskólans á Bifröst verður haldin í Hjálmakletti í Borgarnesi, laugardaginn 13. júní, kl. 11:00. Alls verða 279 nemendur brautskráðir á hátíðinni; 39 nemendur úr Háskólagátt, 65 úr grunnnámi og 175 úr meistaranámi. Ef litið er til einstakra deilda háskólans, þá verða samtals 156 nemendur brautskráðir úr viðskiptadeild, 25 úr lagadeild og 59 úr félagsvísindadeild.

Dagskráin er með áþekku sniði og áður. Framkvæmdastýra kennslu og þjónustu, Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, setur háskólahátíðina og að því búnu mun Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir rektor ávarpa útskriftarefnin. Að því loknu munu verða afhent hvatningaverðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur. Enn fremur munu nemendur flytja ávörp fyrir hönd Háskólagáttar, grunnnema og meistaranema.

Tónlistafólkið Jón Þór Sigmundsson, Edda María Jónsdóttir og Isobel Líf Díaz munu flytja valin sönglög í upphafi dagskrár og milli atriða.

Unnt verður að fylgjast með brautskráningu í beinu streymi hér á háskólavefnum og á Facebook síðu skólans.