Fréttir

true

Fræðsluþing í FVA á morgun

Fyrsta Fræðsluþing framhaldsskólanna þriggja á Vesturlandi; FVA, MB og FSN, verður haldið í Fjölbrautaskóla Vesturlands á morgun, miðvikudaginn 27. maí. Yfirskrift fræðsluþingsins er framtak og forvitni, þar sem skólarnir kynna helstu nýjungar og nýsköpum í námi og kennslu. Viðburðurinn er liður í kjarasamningsbundinni starfsþróun kennara og hafa starfsþróunarteymi skólanna skipulagt metnaðarfulla dagskrá með fjölbreyttum erindum…Lesa meira

true

Rafmagnsleysi aðfaranótt föstudags

Vegna viðhaldsvinnu Landsnets við aðveitustöð rafmagns á Vatnshömrum í Andakíl verður rafmagnslaust á öllu Snæfellsnesi og í Borgarfirði frá kl. 00:10 til 02:10 aðfaranótt föstudagsins 29. maí. Svæðið sem um ræðir er allt Snæfellsnes og Borgarfjörður, þ.m.t. Stykkishólmur, Grundarfjörður, Ólafsvík, Hellissandur, Vegamót og Borgarnes. „Viðskiptavinir eru hvattir til að gera viðeigandi ráðstafanir vegna þessa,“ segir…Lesa meira

true

Ómannað loftfar fer á flug

Landhelgisgæsla Íslands tekur ómannað loftfar til notkunar í vikunni sem ætlað er til eftirlits á hafsvæðinu umhverfis landið næstu mánuði. Loftfarið verður gert út frá Hornafjarðarflugvelli og er af gerðinni Tekever AR5. Það verður nýtt við löggæslu, leit, björgun og mengunareftirlit á hafsvæðinu umhverfis Ísland. „Tilkoma loftfarsins mun styrkja stöðumynd Landhelgisgæslunnar á hafinu umhverfis Ísland…Lesa meira

true

Hægir á aukningu erlendrar netverslunar

Rannsóknasetur verslunarinnar hefur birt tölur um erlenda netverslun fyrir marsmánuð. Hægt hefur nokkuð á vexti erlendrar netverslunar það sem af er ári og nam aukning í mars aðeins 5,0%. Til samanburðar var aukning í erlendri netverslun í janúar á þessu ári 15,8% samaborið við sama mánuð í fyrra. Aukning á erlendri netverslun á fyrsta ársfjórðungi…Lesa meira

true

Vélarvana við Syðrahraun

Skömmu fyrir klukkan ellefu í morgun barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar aðstoðarbeiðni frá litlum fiskibát sem staddur var við Syðrahraun í Faxaflóa. Vélarbilun hindraði frekari för og rafmagn hafði farið af bátnum. Áhöfn björgunarskipsins Jóhannesar Briem í Reykjavík var boðuð út og hélt skipið úr höfn rétt upp úr klukkan 11. Skömmu fyrir hádegi var Jóhannes kominn…Lesa meira

true

Kæra hótanir um ofbeldi

Matvælastofnun hefur sent kæru til lögreglu og farið fram á rannsókn á meintum brotum einstaklings gegn almennum hegningarlögum. Kæran snýr meðal annars að hótunum um ofbeldi gegn starfsmönnum stofnunarinnar vegna starfa þeirra í tengslum við vörslusviptingu dýra. Samkvæmt 106. gr. almennra hegningarlaga er refsivert að beita opinbera starfsmenn ofbeldi eða hótunum um ofbeldi við störf…Lesa meira

true

Framkvæmdir á vegum og varað við holum

Í samantekt Vegagerðarinnar um færð á vegum á Vesturlandi kemur fram að mikið er um holuviðgerðir og því eru vinnuflokkar að störfum. Fólk er beðið að virða merkingar og aka með gát. Meðfylgjandi mynd er úr safni Skessuhorns frá vegaframkvæmdum í Dölum. Framkvæmdir verða á Snæfellsnesvegi (54) í Staðarsveit, milli Hraunsmúla og Búðahrauns, og verður…Lesa meira

true

Óvissa um rekstur hótelsins í Flatey

Hótel Flatey hefur verið ákveðinn miðpunktur þess lífs sem iðar í Flatey á Breiðafirði á sumrin. Nú eru þó blikur á lofti og óvissa um hvort hótelið verði yfirleitt opið í sumar. Fréttavefurinn Vísir fjallaði um málið um helgina. Meðal annars var rætt við Ingibjörgu Ástu Pétursdóttur, sem hóf hótelrekstur í eyjunni fyrir tuttugu árum…Lesa meira

true

Verkefnið Sveitasæla hlaut Foreldraverðlaun Heimilis og skóla

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla voru afhent við hátíðlega athöfn í Herkastalanum í Reykjavík síðastliðinn fimmtudag. Verðlaunin eru veitt árlega fyrir framúrskarandi foreldrastarf eða verkefni sem stuðla sérstaklega að öflugu samstarfi heimila og skóla á öllum skólastigum frá leik- og upp í framhaldsskóla. Verðlaunin minna jafnframt á þann kraft sem felst í samvinnu og virkri þátttöku…Lesa meira

true

Kajaknámskeið á Arnarstapa

Arnarstapi á Snæfellsnesi hefur verið vaxandi staður ferðamanna víða að úr heiminum og staðurinn rómaður fyrir náttúrfegurð og mikið fuglalíf, ásamt góðum matsölustöðum. Félagar í Sea Kayak Iceland hafa síðustu fjögur sumur haldið fjölmenn námskeið fyrir félagsmenn sína og gesti. Kennarar eru bæði íslenskir og erlendir ásamt því að nemendur koma víða að úr hinum…Lesa meira