
Kæra hótanir um ofbeldi
Matvælastofnun hefur sent kæru til lögreglu og farið fram á rannsókn á meintum brotum einstaklings gegn almennum hegningarlögum. Kæran snýr meðal annars að hótunum um ofbeldi gegn starfsmönnum stofnunarinnar vegna starfa þeirra í tengslum við vörslusviptingu dýra. Samkvæmt 106. gr. almennra hegningarlaga er refsivert að beita opinbera starfsmenn ofbeldi eða hótunum um ofbeldi við störf þeirra, eða reyna að hindra framkvæmd slíkra starfa. Slík brot geta varðað allt að sex ára fangelsi, en beita má sektum ef brot teljast smávægileg.