Rafmagnsleysi aðfaranótt föstudags

Vegna viðhaldsvinnu Landsnets við aðveitustöð rafmagns á Vatnshömrum í Andakíl verður rafmagnslaust á öllu Snæfellsnesi og í Borgarfirði frá kl. 00:10 til 02:10 aðfaranótt föstudagsins 29. maí. Svæðið sem um ræðir er allt Snæfellsnes og Borgarfjörður, þ.m.t. Stykkishólmur, Grundarfjörður, Ólafsvík, Hellissandur, Vegamót og Borgarnes.

„Viðskiptavinir eru hvattir til að gera viðeigandi ráðstafanir vegna þessa,“ segir í tilkynningu frá Rarik.