Vélarvana við Syðrahraun

Skömmu fyrir klukkan ellefu í morgun barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar aðstoðarbeiðni frá litlum fiskibát sem staddur var við Syðrahraun í Faxaflóa. Vélarbilun hindraði frekari för og rafmagn hafði farið af bátnum. Áhöfn björgunarskipsins Jóhannesar Briem í Reykjavík var boðuð út og hélt skipið úr höfn rétt upp úr klukkan 11. Skömmu fyrir hádegi var Jóhannes kominn að fiskibátnum sem verður svo dregin til hafnar í Hafnarfirði. Engin yfirvofandi hætta er á ferðum fyrir bát eða skipverja fiskibátsins. Reikna má með að skipin verði komin til hafnar milli 13 og 14.