Hótel og veitingastaður er í uppgerðum pakkhúsum í eyjunni. Ljósm. Hótel Flatey

Óvissa um rekstur hótelsins í Flatey

Hótel Flatey hefur verið ákveðinn miðpunktur þess lífs sem iðar í Flatey á Breiðafirði á sumrin. Nú eru þó blikur á lofti og óvissa um hvort hótelið verði yfirleitt opið í sumar. Fréttavefurinn Vísir fjallaði um málið um helgina. Meðal annars var rætt við Ingibjörgu Ástu Pétursdóttur, sem hóf hótelrekstur í eyjunni fyrir tuttugu árum eftir að búið var að endurgera gömlu pakkhúsin.  Sjálf er Ingibjörg Ásta hætt rekstrinum, og sagði að ekki hafi verið tekið við neinum bókunum á hótelið í vetur og að búið væri að gefa út yfirlýsingu um að hótelið verði lokað í sumar.