
Framkvæmdir á vegum og varað við holum
Í samantekt Vegagerðarinnar um færð á vegum á Vesturlandi kemur fram að mikið er um holuviðgerðir og því eru vinnuflokkar að störfum. Fólk er beðið að virða merkingar og aka með gát. Meðfylgjandi mynd er úr safni Skessuhorns frá vegaframkvæmdum í Dölum.
Framkvæmdir verða á Snæfellsnesvegi (54) í Staðarsveit, milli Hraunsmúla og Búðahrauns, og verður unnið á virkum dögum milli kl. 7:30 og 19:00 og aðra hverja helgi. Áætluð verklok eru í lok september 2026.
Framkvæmdir verða á Stykkishólmsvegi (58) í allt sumar og verður unnið á virkum dögum milli kl. 07:30 og 19:00 og aðra hverja helgi. Áætluð verklok eru í lok september á þessu ári.
Aurbleyta og mjög slæmar ójöfnur eru á veginum á milli Dagverðarness og Stálpastaða í Skorradal.
Á Skarðsströnd í Dölum er vegurinn seinfær á köflum vegna aurbleytu og skemmda. Loks er mikið um holur í vegum í Dölum og er hraði lækkaður víðast hvar. Varað er við steinkasti á leiðinni frá Bröttubrekku að Þröskuldum.