Verðlaunahafar og þeir sem tilnefndir voru til foreldraverðlauna Heimilis og skóla.

Verkefnið Sveitasæla hlaut Foreldraverðlaun Heimilis og skóla

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla voru afhent við hátíðlega athöfn í Herkastalanum í Reykjavík síðastliðinn fimmtudag. Verðlaunin eru veitt árlega fyrir framúrskarandi foreldrastarf eða verkefni sem stuðla sérstaklega að öflugu samstarfi heimila og skóla á öllum skólastigum frá leik- og upp í framhaldsskóla. Verðlaunin minna jafnframt á þann kraft sem felst í samvinnu og virkri þátttöku foreldra og skólasamfélagsins alls.

Að þessu sinni hlaut verkefnið Sveitasæla Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2026. Verkefnið býður nemendum á unglingastigi tækifæri til að taka þátt í daglegum bústörfum á bænum Hrafnagili í Eyjafirði. Þar kynnast nemendur íslenskum landbúnaði af eigin raun, taka þátt í fjölbreyttum verkefnum og öðlast dýrmæta reynslu af ábyrgð, samvinnu og tengingu við nærumhverfi sitt. Jafnframt var Fanný Guðbjörg, formaður foreldrafélags Hörðuvallaskóla, útnefnd Dugnaðarforkur Heimilis og skóla 2026. Viðurkenningin er veitt einstaklingi sem hefur lagt fram sérstaklega mikið og óeigingjarnt starf í þágu nemenda og foreldra.

Sigrún Vigdís tilnefnd

Tekið var við tilnefningum frá almenningi og fór sérstök dómnefnd yfir innsendar tilnefningar áður en niðurstaða var ákveðin. Meðal tilnefndra sem Dugnaðarforkur ársins var Sigrún Vigdís Gylfadóttir iðjuþjálfi sem starfar í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit. Í tilnefningunni sagði m.a: „Sigrún Vigdís er óþrjótandi við að mæta nemendum þar sem þeir eru staddir hverju sinni og finnur lausnir sem styðja við velferð þeirra og nám. Hún er alltaf til staðar, ekki einungis fyrir nemendur og foreldra þeirra, heldur einnig fyrir samstarfsfólk sitt sem hún styður af alúð og fagmennsku. Með hjarta úr gulli og eldmóð sem logar hefur hún einstaka hæfileika til að skapa traust, öryggi og jákvætt andrúmsloft í kringum sig. Framlag hennar er ómetanlegt og hún er sannkölluð fyrirmynd í starfi.“