
Fræðsluþing í FVA á morgun
Fyrsta Fræðsluþing framhaldsskólanna þriggja á Vesturlandi; FVA, MB og FSN, verður haldið í Fjölbrautaskóla Vesturlands á morgun, miðvikudaginn 27. maí.
Yfirskrift fræðsluþingsins er framtak og forvitni, þar sem skólarnir kynna helstu nýjungar og nýsköpum í námi og kennslu. Viðburðurinn er liður í kjarasamningsbundinni starfsþróun kennara og hafa starfsþróunarteymi skólanna skipulagt metnaðarfulla dagskrá með fjölbreyttum erindum og vinnustofum. Þar verður m.a. fjallað um námsmat í stærðfræði í FVA, notkun gervigreindar í kennslu og námsefnisgerð, rafrænt námsefni, virkari þátttöku nemenda og stuðning við nýnema FVA. Einnig verða kynningar á lokaverkefnum nemenda, lífsnámi og STEAM-kennslu í MB, sem og stafrænum lausnum á borð við Inspera og nýjar nálganir á borð við „sakamálanámskeiðið“ SAKA í FSN. Þingið leggur áherslu á samvinnu kennara og miðlun hugmynda milli skóla.
Að málstofum loknum er kynnisferð um glæsilega verknámsaðstöðu skólans í húsasmíði, rafvirkjun og vélvirkjun. Fræðsluþingið endar á samveru með léttum veitingum.
Hugmyndin er síðan að hver skólanna haldi síðan áþekkt þing á tveggja ára fresti þar sem miðlað er af allri þeirri reynslu, fagmennsku og þekkingu sem kennarar búa yfir.
-fréttatilkynning
