
Róið í höfninni. Texti og myndir: AF
Kajaknámskeið á Arnarstapa
Arnarstapi á Snæfellsnesi hefur verið vaxandi staður ferðamanna víða að úr heiminum og staðurinn rómaður fyrir náttúrfegurð og mikið fuglalíf, ásamt góðum matsölustöðum. Félagar í Sea Kayak Iceland hafa síðustu fjögur sumur haldið fjölmenn námskeið fyrir félagsmenn sína og gesti. Kennarar eru bæði íslenskir og erlendir ásamt því að nemendur koma víða að úr hinum stóra heimi.