Fréttir

true

Kynntu frumtillögur um nýtingu Ægisbrautar á Akranesi

Síðdegis í gær hélt Akraneskaupstaður kynningarfund um það sem mætti kalla tilgátunýtingu á byggðinni frá Ægisbraut og vestur úr til móts við Brekkubæjarskóla. Skipulags- og umhverfisráð hafði fyrr í vetur fengið þrjár hönnunarstofur til að vinna frumtillögur að framtíðarsýn fyrir svæðið en í forsendum fyrir verkefninu er gert ráð fyrir að gegnt Brekkubæjarskóla verði nýr…Lesa meira

true

Eldur kom upp í báti á Húnaflóa

Klukkan fjögur í nótt óskaði skipstjóri lítils fiskibáts eftir aðstoð björgunarsveita eftir að eldur kom upp í vélarrúmi bátsins rétt norðaustur af Skagaströnd. Honum hafði þá tekist að slökkva eldinn en báturinn var aflvana. Áhöfn björgunarskipsins Húnabjargar var boðuð út á næst-hæsta forgangi og fór Húnabjörgin úr höfn á Skagaströnd rétt upp úr kl. hálf…Lesa meira

true

Mikil uppbygging í Stykkishólmi og stöðugur vöxtur

Áhersla verið lögð á uppbyggingu nýs íbúahverfis og leik- og grunnskóla Mikil innviðauppbygging hefur átt sér stað í Stykkishólmi á undanförnum árum og sú íbúafjölgun sem þar hefur átt sér stað er merki um jákvæðu þróun. Stykkishólmur er sá staður á Vesturlandi sem er hvað vinsælastur heim að sækja og samkvæmt talningu Ferðamálastofu er sveitarfélagið…Lesa meira

true

Hraðakstur og aðrar sektir í vikunni

Í vikunni sem leið voru 85 ökumenn stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Að auki voru 545 ökumenn myndaðir af myndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Einn var handtekinn grunaður um ölvun við akstur og annar handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Tveir voru kærðir fyrir að…Lesa meira

true

Frjálsi lífeyrissjóðurinn og Lífeyrissjóður bænda sameinast

Stjórnir Frjálsa lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs bænda hafa undirritað samning um sameiningu lífeyrissjóðanna. „Sameiningin verður lögð fram til staðfestingar á ársfundi Lífeyrissjóðs bænda sem haldinn verður í júní og er háð samþykki Samkeppniseftirlitsins og staðfestingu fjármála- og efnahagsráðuneytisins á breytingum á samþykktum sjóðanna. Viðræður um sameiningu sjóðanna hófust á haustmánuðum 2025 og eftir gerð áreiðanleikakönnunar og…Lesa meira

true

Íssalan tekur kipp á svona dögum

Það er ekki bara íssalan sem tekur kipp á svona blíðviðrisdögum eins og í dag. Mannlífið allt tekur við sér þegar hitinn fer yfir tveggja stafa tölu. Þegar blaðamaður Skessuhorns var á ferðinni í miðbænum á Akranesi í dag gat hann ekki staðist mátið og smellti nokkrum myndum af góðborgurum Akraness að sleikja sól og…Lesa meira

true

Næturlokanir þrátt fyrir mikla ferðahelgi

Vegagerðin hefur birt sérstaka tilkynningu vegna næturlokana Hvalfjarðarganga um hvítasunnu, sem jafnan er mjög stór ferðahelgi. Lokað verður aðfararnætur föstudags, mánudags og þriðjudags frá klukkan 21:30 til klukkan 6 að morgni. Ekki verður því lokað fyrir umferð aðfararnætur laugardags og sunnudags. Undanfarna tvo mánuði hefur verið unnið að endurnýjun ljósa í göngunum. Upphafleg verklok við…Lesa meira

true

Þríhliða samtal til að forsendur kjarasamninga haldi

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra, Finnbjörn Hermannsson forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA) hafa ákveðið að hefja þríhliða samtal ríkisins, ASÍ og SA með það að markmiði að forsendur kjarasamninga á almennum vinnumarkaði haldi haustið 2026. Leitað verði leiða til að hemja verðbólgu og unnið að…Lesa meira

true

Fjallað um fasteignamarkaðinn á Vesturlandi í nýrri Glefsu

Fasteignamarkaðurinn vekur ávallt mikla athygli. Fólk hefur bæði áhuga á verðmæti eigin fasteigna og fasteignaverði á þeim svæðum sem það hyggst flytja til, meðal annars til að geta metið væntanlegan kostnað við íbúðakaup. Rannsóknir hafa sýnt að ýmsir þættir á fasteignamarkaði hafa áhrif á flutningsvilja fólks milli staða. Af sömu ástæðu er einnig áhugavert að…Lesa meira

true

Hann var þarna – en vildi ekki bíta á

„Þetta gekk ekki núna, laxinn var þarna en vildi ekki fluguna, það er bara stundum svona,“ sagði Mikael Marinó Rivera sem veiddi fyrsta laxinn í fyrra í Skugga í Borgarfirði og reyndar árið áður líka. En núna vildi laxinn ekki taka þegar opnað var fyrir veiði. „Já, laxinn er svo sannarlega mættur þarna en hann…Lesa meira