
Hann var þarna – en vildi ekki bíta á
„Þetta gekk ekki núna, laxinn var þarna en vildi ekki fluguna, það er bara stundum svona,“ sagði Mikael Marinó Rivera sem veiddi fyrsta laxinn í fyrra í Skugga í Borgarfirði og reyndar árið áður líka. En núna vildi laxinn ekki taka þegar opnað var fyrir veiði. „Já, laxinn er svo sannarlega mættur þarna en hann vildi ekki fluguna mína núna. Kíkti á hana, rauk svo bara í burtu. En ég var kátur að sjá að það er komið líf, þetta er alltaf jafn gaman.“