Björn Lúðvíks, Adriana Monika, Úlfar, Bryndís og Svavar Karl nutu sólarinnar. Ljósm. óhk

Íssalan tekur kipp á svona dögum

Það er ekki bara íssalan sem tekur kipp á svona blíðviðrisdögum eins og í dag. Mannlífið allt tekur við sér þegar hitinn fer yfir tveggja stafa tölu. Þegar blaðamaður Skessuhorns var á ferðinni í miðbænum á Akranesi í dag gat hann ekki staðist mátið og smellti nokkrum myndum af góðborgurum Akraness að sleikja sól og ís – tveir fyrir einn – fyrir utan ísbúðina Frystihúsið, sem er til húsa við Akratorg. Freyr Líndal eigandi sagði að salan ykist alltaf mikið á svona dögum. „Við erum líka með kaffi og vöfflur, sem er vinsælt með, einkum þegar skýjað er. Þá var ég með Pokémon spil til sölu hérna um daginn og þau seldust öll upp á augabragði. Það er svo skemmtilegt að hafa líf hérna í miðbænum,“ sagði Freyr brosandi út í bæði.