
Eldur kom upp í báti á Húnaflóa
Klukkan fjögur í nótt óskaði skipstjóri lítils fiskibáts eftir aðstoð björgunarsveita eftir að eldur kom upp í vélarrúmi bátsins rétt norðaustur af Skagaströnd. Honum hafði þá tekist að slökkva eldinn en báturinn var aflvana. Áhöfn björgunarskipsins Húnabjargar var boðuð út á næst-hæsta forgangi og fór Húnabjörgin úr höfn á Skagaströnd rétt upp úr kl. hálf fimm í nótt. Upp úr klukkan fimm var Húnabjörgin komin að bátnum og taug komið á milli. Haldið var til hafnar á Skagaströnd þangað sem Húnabjörgin kom með bátinn rétt fyrir klukkan sex í morgun. Meðfylgjandi er ljósmynd sem tekin var í morgun á leið til hafnar.