
Unnið við endurnýjun lýsingar. Ljósm. Vegagerðin
Næturlokanir þrátt fyrir mikla ferðahelgi
Vegagerðin hefur birt sérstaka tilkynningu vegna næturlokana Hvalfjarðarganga um hvítasunnu, sem jafnan er mjög stór ferðahelgi. Lokað verður aðfararnætur föstudags, mánudags og þriðjudags frá klukkan 21:30 til klukkan 6 að morgni. Ekki verður því lokað fyrir umferð aðfararnætur laugardags og sunnudags. Undanfarna tvo mánuði hefur verið unnið að endurnýjun ljósa í göngunum. Upphafleg verklok við endurnýjun ljósa var áætluð föstudaginn 29. maí og stefnir allt í að sú tímaáætlun muni standast.