Um hundrað manns hlýddu á kynningar þriggja arkitektastofa um framtíðarsýn fyrir Ægisbrautarsvæðið. Ljósm. mm

Kynntu frumtillögur um nýtingu Ægisbrautar á Akranesi

Síðdegis í gær hélt Akraneskaupstaður kynningarfund um það sem mætti kalla tilgátunýtingu á byggðinni frá Ægisbraut og vestur úr til móts við Brekkubæjarskóla. Skipulags- og umhverfisráð hafði fyrr í vetur fengið þrjár hönnunarstofur til að vinna frumtillögur að framtíðarsýn fyrir svæðið en í forsendum fyrir verkefninu er gert ráð fyrir að gegnt Brekkubæjarskóla verði nýr átta til tíu deilda leikskoli.