Framkvæmdir eru hafnar við byggingu hús á Kirkjubraut 39 á Akranesi, en meðfylgjandi er þrívíddarteikning af því.

Fjallað um fasteignamarkaðinn á Vesturlandi í nýrri Glefsu

Fasteignamarkaðurinn vekur ávallt mikla athygli. Fólk hefur bæði áhuga á verðmæti eigin fasteigna og fasteignaverði á þeim svæðum sem það hyggst flytja til, meðal annars til að geta metið væntanlegan kostnað við íbúðakaup. Rannsóknir hafa sýnt að ýmsir þættir á fasteignamarkaði hafa áhrif á flutningsvilja fólks milli staða. Af sömu ástæðu er einnig áhugavert að skoða fjölda seldra fasteigna á hverjum stað.

Í nýrri Glefsu, vefriti Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, er fjallað um fasteignamarkaðinn á Vesturlandi. Sjónum er beint að íbúðaverði auk fjölda seldra eigna. Fyrst er fjallað um fjölda fasteignaviðskipta og kannað hvort merki séu um breytingar á árinu 2025 miðað við þrjú fyrri ár. Því næst er fjallað um meðalfermetraverð íbúða árið 2025 og það sem liðið er af árinu 2026. Niðurstöðurnar eru settar fram með myndrænum hætti eftir póstnúmerum.