Frjálsi lífeyrissjóðurinn og Lífeyrissjóður bænda sameinast

Stjórnir Frjálsa lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs bænda hafa undirritað samning um sameiningu lífeyrissjóðanna. „Sameiningin verður lögð fram til staðfestingar á ársfundi Lífeyrissjóðs bænda sem haldinn verður í júní og er háð samþykki Samkeppniseftirlitsins og staðfestingu fjármála- og efnahagsráðuneytisins á breytingum á samþykktum sjóðanna. Viðræður um sameiningu sjóðanna hófust á haustmánuðum 2025 og eftir gerð áreiðanleikakönnunar og ítarlegt mat á fýsileika sameiningar telja stjórnir beggja lífeyrissjóða að sameining efli rekstrargrundvöll og sé til hagsbóta fyrir sjóðfélaga beggja sjóða,“ segir í tilkynningu.