Fréttir

true

Víkingur sigraði í leik við norðanmenn

Á laugardaginn tók Víkingur Ólafsvík á móti Dalvík/Reyni á Ólafsvíkurvelli í leik í þriðju umferð annarrar deildar meistaraflokks karla. Áki Sölvason kom gestunum yfir á 26. mínútu, en Naim Aaras EL Hmaidi jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks. Það var síðan Kolbeinn Tumi Sveinsson sem tryggði Víkingi sigurinn. Víkingur er nú í 6. sæti með…Lesa meira

true

SVFR áfram í maðkaveislu Gljúfurár

Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur framlengt leigusamning um veiðirétt í Gljúfurá í Borgarfirði. Magnús Fjeldsted formaður Veiðifélags Gljúfurár segir að samningurinn framlengi samstarf sem staðið hefur óslitið frá árinu 1982, eða í um 44 ár. Gljúfurá er eitt af síðustu vígjum maðkveiðimanna í Borgarfirði og mikill meirihluti laxa sem veiddist þar í fyrra voru einmitt veiddir á…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður hefur staðið vel að húsnæðisuppbyggingu

Vel hefur verið staðið að húsnæðisuppbyggingu hjá Akraneskaupstað undanfarin ár. Samkvæmt nýrri samantekt Húsnæðis,- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) um húsnæðisáætlanir sveitarfélaga árið 2025, hefur húsnæðisuppbygging hjá Akraneskaupstað verið í samræmi við íbúðaþörf undanfarin ár. Þetta kemur fram á vef Akraneskaupstaðar. Þar kemur einnig fram að Akraneskaupstaður hafi tryggt nægilegt framboð byggingarhæfra lóða til framtíðaruppbyggingar.  Í…Lesa meira

true

Hefja viðræður um myndun meirihluta á Akranesi

Búið er að handsala samkomulag milli Sjálfstæðisflokksins á Akranesi og Framsóknar með frjálsum um að hefja viðræður um myndun meirihluta þessara flokka í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar. Líf Lárusdóttir oddviti Sjálfstæðisflokks segir í samtali við Skessuhorn að vilji hafi verið til að láta reyna á hvort flokkarnir nái saman um mál og áherslur fyrir næsta kjörtímabil. Hún…Lesa meira

true

Buðu í kosningakaffi þótt sjálfkjörið væri

Aðeins einn flokkur bauð fram í Snæfellsbæ og var því sjálfkjörið þar. Þrátt fyrir það bauð Sjálfstæðisflokkurinn í kosningakaffi í gær þar sem borð svignuðu undan kræsingum. Gestir fjölmenntu í Klif og kunnu vel að meta þetta framtak verðandi bæjarstjórnarflokks.Lesa meira

true

Sveitarstjórnarfulltrúar í Hvalfjarðarsveit

Tveir listar voru í boði í Hvalfjarðarsveit að þessu sinni; A listi Samhentrar sveitar og Í listi Íbúahreyfingarinnar. Á kjörskrá voru 657 og atkvæði greiddu 507, eða 77,2%. Auðir seðlar voru 17 og ógildir fjórir. A-listi Samhent sveit hlaut fimm fulltrúa, fékk 336 atkvæði og 69,1% fylgi, en Í-listi Íbúahreyfingarinnar hlaut tvo fulltrúa, fékk 150…Lesa meira

true

Þau setjast í bæjarstjórn í Stykkishólmi

H listi Framfarasinna hélt meirihluta sínum í Sveitarfélaginu Stykkishólmi og fékk raunar fleiri atkvæði en fyrir fjórum árum. Hann hlaut nú 60,2% fylgi og fjóra bæjarfulltrúa. Íbúalistinn fékk 39,8% og þrjá bæjarfulltrúa. Bæjarfulltrúar verða: Björn Ásgeir Sumarliðason, Steinunn I. Magnúsdóttir, Mattías Arnar Þorgrímsson og Þórhildur Eyþórsdóttir frá H lista. Frá Í lista setjast í bæjarstjórn:…Lesa meira

true

Viðhorf til sameiningar kannað í Eyja- og Miklaholtshreppi

Samhliða kosningu nýrrar hreppsnefndar í Eyja- og Miklaholtshreppi í gær var lögð fram skoðanakönnun um áhuga fólks fyrir sameiningu við önnur sveitarfélög. 53 kjósendur, 16 ára og eldri, tóku þátt í könnuninni. Einn seðill var auður. Niðurstaðan var býsna afgerandi. Þegar spurt var: „Ætti Eyja- og Miklaholtshreppur að hefja sameiningarviðræður,“ svöruðu 42 því játandi, einn…Lesa meira

true

Ný sveitarstjórn kjörin í Dalabyggð

Í Dalabyggð var viðhaft persónukjör við kosningarnar á laugardaginn þar sem engir framboðslistar bárust. Kjörsókn að þessu sinni var með minnsta móti, eða 54,87%. Eftirtaldir hlutu kjör sem aðalmenn í sveitarstjórn Dalabyggðar 2026-2030: Ingibjörg Þóranna Steinudóttir 248 atkvæði Guðbrandur Tumi Gíslason 238 atkvæði Ingveldur Guðmundsdóttir 228 atkvæði Skjöldur Orri Skjaldarson 222 atkvæði Guðlaug Kristinsdóttir 192…Lesa meira

true

Sjálfstæðisflokkurinn í lykilstöðu í Borgarbyggð

Miklar sviptingar urðu í kosningunum í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Í Borgarbyggð hafði Framsóknarflokkur hreinan meirihluta á liðnu kjörtímabili, fimm fulltrúa í sveitarstjórn með tæplega helmings fylgi á bak við sig. Flokkurinn tapaði helmingi þess fylgis nú, fékk 25,36%, og tvo fulltrúa í sveitarstjórn. Sjálfstæðisflokkur jók fylgi sitt frá síðustu kosningum, fékk 29,26% nú…Lesa meira