
Víkingar í sókn. Ljósm. af
Víkingur sigraði í leik við norðanmenn
Á laugardaginn tók Víkingur Ólafsvík á móti Dalvík/Reyni á Ólafsvíkurvelli í leik í þriðju umferð annarrar deildar meistaraflokks karla. Áki Sölvason kom gestunum yfir á 26. mínútu, en Naim Aaras EL Hmaidi jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks. Það var síðan Kolbeinn Tumi Sveinsson sem tryggði Víkingi sigurinn.