Líf Lárusdóttir oddviti Sjálfstæðisflokks og Ragnar B Sæmundsson oddviti Framsóknar með frjálsum.

Hefja viðræður um myndun meirihluta á Akranesi

Búið er að handsala samkomulag milli Sjálfstæðisflokksins á Akranesi og Framsóknar með frjálsum um að hefja viðræður um myndun meirihluta þessara flokka í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar. Líf Lárusdóttir oddviti Sjálfstæðisflokks segir í samtali við Skessuhorn að vilji hafi verið til að láta reyna á hvort flokkarnir nái saman um mál og áherslur fyrir næsta kjörtímabil. Hún segir mikið traust ríkja á milli hennar og Ragnars B Sæmundssonar oddvita Framsóknar með frjálsum og samstarfið í bæjarstjórn hafi verið gott. „Við oddvitarnir hittumst á fundi í morgun og aftur í kvöld, en höfum verið í góðu samtali við okkar flokksfélaga í dag. Vonandi munu þessar viðræður ganga fljótt og vel,“ segir Líf og kveðst reikna með að málefnavinnu geti lokið á innan við tveimur vikum. Líf tekur það fram að samstarfið við Samfylkinguna hafi verið gott á liðnu kjörtímabili, en þetta hafi verið niðurstaða funda í morgun.

Sjálfstæðisflokkur er í lykilstöðu eftir úrslit gærdagsins, fékk 32,6% fylgi og þrjá menn í bæjarstjórn, en Framsókn með frjálsum fékk 22,6% og tvo menn. Ef viðræður leiða til myndunar meirihluta mun þetta vera í fyrsta skipti í 82 ára sögu Akraneskaupstaðar að þessir tveir flokkar myndi saman meirihluta.