
Samhent sveit hlaut afgerandi kosningu, fimm fulltrúa og um 69% fylgi. Hér eru frambjóðendur við Miðgarð.
Sveitarstjórnarfulltrúar í Hvalfjarðarsveit
Tveir listar voru í boði í Hvalfjarðarsveit að þessu sinni; A listi Samhentrar sveitar og Í listi Íbúahreyfingarinnar. Á kjörskrá voru 657 og atkvæði greiddu 507, eða 77,2%. Auðir seðlar voru 17 og ógildir fjórir. A-listi Samhent sveit hlaut fimm fulltrúa, fékk 336 atkvæði og 69,1% fylgi, en Í-listi Íbúahreyfingarinnar hlaut tvo fulltrúa, fékk 150 atkvæði eða tæplega 31%.
Kjörnir sveitarstjórnarmenn í Hvalfjarðarsveit verða því: Haraldur Benediktsson, Guðrún Sigríður Gísladóttir, Guðbjartur Þór Stefánsson, Einar Þórarinsson og Brynhildur Stefánsdóttir frá A lista. Af Í lista setjast í sveitarstjórn: Þóra Margrét Júlíusdóttir og Baldur Þór Ketilsson.
Sveitarstjóraefni A lista er Bjarki Þorsteinsson fráfarandi sveitarstjóri í Dalabyggð.