Akraneskaupstaður gerir ráð fyrir að árleg ný íbúðaþörf verði á bilinu 83 til 104 íbúðir á tímabilinu 2025 til 2034 og hefur tryggt nægilega margar byggingarhæfar lóðir til að mæta því. Ljósm. Akraneskaupstaður

Akraneskaupstaður hefur staðið vel að húsnæðisuppbyggingu

Vel hefur verið staðið að húsnæðisuppbyggingu hjá Akraneskaupstað undanfarin ár. Samkvæmt nýrri samantekt Húsnæðis,- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) um húsnæðisáætlanir sveitarfélaga árið 2025, hefur húsnæðisuppbygging hjá Akraneskaupstað verið í samræmi við íbúðaþörf undanfarin ár. Þetta kemur fram á vef Akraneskaupstaðar. Þar kemur einnig fram að Akraneskaupstaður hafi tryggt nægilegt framboð byggingarhæfra lóða til framtíðaruppbyggingar.  Í húsnæðisáætlun sveitarfélagsins eru tilgreindar byggingarhæfar lóðir fyrir 238 íbúðir árið 2026. Akraneskaupstaður gerir ráð fyrir að árleg ný íbúðaþörf verði á bilinu 83 til 104 íbúðir á tímabilinu 2025-2034. Því hefur sveitarfélagið útvegað nægilega margar byggingarhæfar lóðir til þess að mæta íbúðaþörf samkvæmt eigin mati.

Akraneskaupstaður hefur staðið vel að húsnæðisuppbyggingu - Skessuhorn