
Sjálfstæðisflokkurinn í lykilstöðu í Borgarbyggð
Miklar sviptingar urðu í kosningunum í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Í Borgarbyggð hafði Framsóknarflokkur hreinan meirihluta á liðnu kjörtímabili, fimm fulltrúa í sveitarstjórn með tæplega helmings fylgi á bak við sig. Flokkurinn tapaði helmingi þess fylgis nú, fékk 25,36%, og tvo fulltrúa í sveitarstjórn. Sjálfstæðisflokkur jók fylgi sitt frá síðustu kosningum, fékk 29,26% nú og þrjá fulltrúa. Flokkurinn er því í lykilstöðu að mynda meirihluta með einhverjum hinna flokkanna sem fengu allir tvo fulltrúa í sveitarstjórn. Borgarbyggðarlistinn bauð fram í fyrsta skipti í kosningunum, fékk 23,5% fylgi og tvo fulltrúa í sveitarstjórn. Loks bauð Miðflokkurinn fram nú og hlaut 21,9% fylgi og sömuleiðis tvo fulltrúa. Við síðustu kosningar buðu fram lista sameiginlega; Samfylking og Viðreisn, í Borgarbyggð og fengu einn fulltrúa og Vinstri hreyfingin grænt framboð átti sömuleiðis einn fulltrúa í fráfarandi sveitarstjórn. Þessir flokkar stóðu að baki framboði Borgarbyggðarlistans nú.
Fulltrúar í sveitarstjórn sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps verða: Sigurður Guðmundsson, Ragnhildur Eva Jónsdóttir og Kristján Ágúst Magnússon frá Sjálfstæðisflokki, Davíð Sigurðsson og Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir frá Framsóknarflokki, Jovana Pavlović og Hermann B. Valsson frá Borgarbyggðarlistanum og þeir Haukur Þór Hauksson og Þórður Brynjarsson frá Miðflokki.