SVFR áfram í maðkaveislu Gljúfurár

Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur framlengt leigusamning um veiðirétt í Gljúfurá í Borgarfirði. Magnús Fjeldsted formaður Veiðifélags Gljúfurár segir að samningurinn framlengi samstarf sem staðið hefur óslitið frá árinu 1982, eða í um 44 ár. Gljúfurá er eitt af síðustu vígjum maðkveiðimanna í Borgarfirði og mikill meirihluti laxa sem veiddist þar í fyrra voru einmitt veiddir á maðk. Í fyrra veiddust 117 laxar í Gljúfurá og 82 sjóbirtingar. Áin er sannkölluð matarhola fyrir þá sem þangað leita enda mjög lágt hlutfall af fiski sem er sleppt þar. 15% af þeim löxum sem veiddust í fyrra var sleppt og 9% af sjóbirtingum.