
Gerðuberg í Eyja- og Miklaholtshreppi. Ljósm. mm
Viðhorf til sameiningar kannað í Eyja- og Miklaholtshreppi
Samhliða kosningu nýrrar hreppsnefndar í Eyja- og Miklaholtshreppi í gær var lögð fram skoðanakönnun um áhuga fólks fyrir sameiningu við önnur sveitarfélög. 53 kjósendur, 16 ára og eldri, tóku þátt í könnuninni. Einn seðill var auður. Niðurstaðan var býsna afgerandi. Þegar spurt var: „Ætti Eyja- og Miklaholtshreppur að hefja sameiningarviðræður,“ svöruðu 42 því játandi, einn var á móti en sjö höfðu ekki skoðun á því.