
Sigurreifir fulltrúar H listans ásamt Jakobi bæjarstjóra. Ljósm. H-listinn
Þau setjast í bæjarstjórn í Stykkishólmi
H listi Framfarasinna hélt meirihluta sínum í Sveitarfélaginu Stykkishólmi og fékk raunar fleiri atkvæði en fyrir fjórum árum. Hann hlaut nú 60,2% fylgi og fjóra bæjarfulltrúa. Íbúalistinn fékk 39,8% og þrjá bæjarfulltrúa.
Bæjarfulltrúar verða: Björn Ásgeir Sumarliðason, Steinunn I. Magnúsdóttir, Mattías Arnar Þorgrímsson og Þórhildur Eyþórsdóttir frá H lista. Frá Í lista setjast í bæjarstjórn: Sigurður Grétar Jónasson, Rannveig Tenchi Ernudóttir og Kristján Hildibrandsson.
Jakob Björgvin S Jakobsson, sem verið hefur bæjarstjóri frá 2018, mun því halda áfram en hann var sem fyrr bæjarstjóraefni H listans.