Fréttir

true

Úrslit í stærðfræðikeppni grunnskólanna á Vesturlandi

Hin árlega stærðfræðikeppni grunnskóla á Vesturlandi, sem Fjölbrautaskóli Vesturlands stendur fyrir, fór fram 17. apríl síðastliðinn. Alls tóku 114 nemendur þátt. Sigríður Ragnarsdóttir, deildarstjóri stærðfræðideildar FVA, sá um skipulagningu og framkvæmd keppninnar ásamt stærðfræðikennurum skólans. Keppendur komu frá sex skólum á Vesturlandi. Síðastliðinn laugardag voru veittar viðurkenningar í sal FVA fyrir efstu tíu sætin í…Lesa meira

true

Aflétta þungatakmörkunum á tveimur vegum

Vegagerðin hefur gefið út að sérstökum þungatakmörkunum hefur verið aflétt á tveimur stöðum um vestanvert landið. Það er á Akrafjallsvegi (51) og á Innstrandarvegu (68) frá vegamótum Laxárdalsheiði að Djúpvegi (61).Lesa meira

true

Skallagrímur með stórsigur á Herði

Fyrsta umferð 5. deildar karla í fótbolta fór af stað í gær. Skallagrímur átti draumabyrjun þegar þeir mættu Herði frá Ísafirði á Kerecisvellinum fyrir vestan. Í hópi Skallagríms eru tíu uppaldir knattspyrnumenn hjá félaginu og voru sjö þeirra í byrjunarliðinu. Skallagrímur lék á alls oddi og komst þeir í 4:0. Borgfirðingurinn Sveinn Svavar Hallgrímsson skoraði…Lesa meira

true

Víkingur Ó steinlá á heimavelli

Víkingur og Kormákur/Hvöt áttust við á Ólafsvíkurvelli á laugardaginn í 2. deild karla í fótbolta, þar sem Kormákur/Hvöt bar sigur úr býtum. Leiknum lauk með tveimur mörkum gegn engu. Víkingur Ó situr í næst neðsta sæti í riðlinum af tólf liðum eftir tvær fyrstu umferðirnar, með eitt stig. Víkingur Ó gerði jafntefli 3:3 við Hvíta…Lesa meira

true

Skagakonur með góðan heimasigur

Skagakonur í meistaraflokki kvenna tóku á móti FHL í annarri umferð Lengjudeildarinnar á laugardaginn, en leikurinn fór fram í Akraneshöllinni. Eftir tap fyrir HK í fyrstu umferð deildarinnar stigu ÍA konur upp og sóttu þrjú stig gegn FHL. Góður heimasigur 1:0 en markið skoraði Alexa Maletis. Skagakonur eru í áttunda sæti með þrjú stig líkt…Lesa meira

true

Skagamenn í brasi í Bestu deildinni

Skagamenn tóku á móti Keflavík á Elkem vellinum á Akranesi á föstudaginn í 6. umferð meistaraflokks karla í Bestu deildinni. Þetta var fyrsti leikurinn á grasvellinum sem hefur ekki verið í standi fyrr en nú vegna tíðarfars seinni hluta vetrar. Það verður að segjast að Skagamenn hafa ekki byrjað mótið eins vel og þeir hefðu…Lesa meira

true

Úrslit Íþróttamóts Borgfirðings

Íþróttamót hestamannafélagsins Borgfirðings var haldið um helgina. Mjög góð þátttaka var, eða um 100 skráningar. Öll forkeppni var riðin á laugardeginum og svo úrslit í gær. Gaman var að sjá hvað var góð skráning í yngstu aldursflokkunum og verður spennandi að fylgjast með þessum flottu krökkum í framtíðinni. Næst fara svo að hefjast úrtökur hjá…Lesa meira

true

Leirá leynir á sér

Leirá í Leirársveit er lítil en afar skemmtileg lax- og sjóbirtingsá. Áin er tveggja stanga, um sjö kílómetra langt veiðisvæði, með 24 merktum veiðistöðum sem bjóða upp á fjölbreytta og skemmtilega veiði. Leirá hefur lengi verið þekkt fyrir góða sjóbirtingsveiði á vorin og er af mörgum talin ein áhugaverðasta vorveiðiáin í nágrenni Reykjavíkur. Þar gefast…Lesa meira

true

Verðandi bæjarstjórn hélt íbúafund í Klifi

D listinn í Snæfellsbæ hélt opinn íbúafund í félagsheimilinu Klifi þriðjudaginn 5. maí þar sem kynnt voru helstu stefnumál fyrir komandi kjörtímabil og íbúar fengu tækifæri til að koma með hugmyndir inn í stefnuskrána sem verið er að vinna að. „Fundurinn var vel sóttur. Þar var farið yfir helstu rekstrartölur sveitarfélagsins en staða Snæfellsbæjar verður…Lesa meira

true

Fjöldi fólks kvartar yfir versnandi fjarskiptasambandi

Sigrún Ólafsdóttir bóndi í Hallkelsstaðahlíð í Hnappadal setti óformlega könnun á FB síðu sína í gær þar sem hún kannar hvort vinir hennar hafi orðið varir við versnandi símasamband í kjölfar þess að slökkt hafi verið á 2 og 3 G sendum. „Mig langar að fá viðbrögð íbúa Borgarbyggðar og nærsveita við neðangreindu máli,“ skrifar…Lesa meira