
Svipmynd af íbúafundinum. Ljósm. aðsend
Verðandi bæjarstjórn hélt íbúafund í Klifi
D listinn í Snæfellsbæ hélt opinn íbúafund í félagsheimilinu Klifi þriðjudaginn 5. maí þar sem kynnt voru helstu stefnumál fyrir komandi kjörtímabil og íbúar fengu tækifæri til að koma með hugmyndir inn í stefnuskrána sem verið er að vinna að. „Fundurinn var vel sóttur. Þar var farið yfir helstu rekstrartölur sveitarfélagsins en staða Snæfellsbæjar verður að teljast afar góð. Fjárhagsleg staða sveitarfélagsins og lág skuldastaða veitir tækifæri til enn frekari fjárfestinga og að íbúarnir njóti góðrar stöðu sveitarfélagsins,“ segir Auður Kjartansdóttir oddviti D lista í Snæfellsbæ.Meðal þeirra verkefna sem Sjálfstæðismenn kynntu á fundinum eru: