Litið í baksýnisspegilinn. Ljósm. Sigrún Ólafsdóttir

Fjöldi fólks kvartar yfir versnandi fjarskiptasambandi

Sigrún Ólafsdóttir bóndi í Hallkelsstaðahlíð í Hnappadal setti óformlega könnun á FB síðu sína í gær þar sem hún kannar hvort vinir hennar hafi orðið varir við versnandi símasamband í kjölfar þess að slökkt hafi verið á 2 og 3 G sendum. „Mig langar að fá viðbrögð íbúa Borgarbyggðar og nærsveita við neðangreindu máli,“ skrifar hún: „Mín tilfinning er að símasamband víða hafi versnað mikið að undanförnu jafnvel á þeim stöðum þar sem það hefur verið gott. Ég er ekki að tala um þau tæki sem studdust við þær sendingar sem nú hefur verið slökkt á. Heldur þau tæki sem standast allar nýjar kröfur og þá staði sem um árabil hafa verið í góðu símasambandi. Fjarskiptafyrirtækin kannast ekki við að eitthvað hafi breyst og er alltaf jafn hissa á kvörtunum sem þeim berast,“ skrifar Sigrún.

Afar fróðlegt er að lesa svör sem Sigrún fær við þessum hugleiðingum. Nánast án undantekninga hefur fólk orðið vart við að „dauðum“ svæðum hafa fjölgað, bæði varðandi síma og útvarp. Á einum sólarhring höfðu á fimmta tug lýst versnandi síma- og fjarskiptasambandi heima hjá sér. Þetta fólk býr á Snæfellsnesi, í Borgarfirði og á Skógarströnd, svo dæmi séu tekin. Svo virðist sem engu máli skipti þótt fólk hafi sjónlínu við endurvarpssenda. Nú sé eitt strik í styrk í símunum í stað fimm strika þegar geislinn er sterkur.

Eitt af svörunum sem Sigrún fékk var frá Aðalsteini Bjarna Bjarnasyni sem skrifar: „Það er eðlileg krafa að það séu gerðar ítarlegri mælingar á fjarskiptasambandi til að kortleggja móttökustyrk. Það er til að mynda ótækt að láta fólk borga nefskatt fyrir RÚV ef það nær varla útvarps- eða sjónvarpssendingum. Það á ekki að þurfa internet og afruglara til að ná sjónvarpsútsendingum, því það er aukakostnaður.“

Ekki náðist í Sigrúnu við vinnslu fréttarinnar!