Lárus Orri Sigurðsson þjálfari Skagamanna þungur á brún. Ljósm. fotbolti.net.

Skagamenn í brasi í Bestu deildinni

Skagamenn tóku á móti Keflavík á Elkem vellinum á Akranesi á föstudaginn í 6. umferð meistaraflokks karla í Bestu deildinni. Þetta var fyrsti leikurinn á grasvellinum sem hefur ekki verið í standi fyrr en nú vegna tíðarfars seinni hluta vetrar. Það verður að segjast að Skagamenn hafa ekki byrjað mótið eins vel og þeir hefðu viljað, en þeir unnu Stjörnunna 2-1 í síðustu umferð. Til þessa hafði ÍA tapað tveimur leikjum unnið einn og tvisvar gert jafntefli. Þeir sitja nú í 8. sæti deildarinnar. Lárus Orri tók við liðinu á seinni hluta síðasta tímabils eftir slakt gengi en hann gerði vel í að afstýra falli Skagamanna úr Bestu deildinni á síðustu leiktíð. Það virtist lofa góðu og gefa fyrirheit um tímabilið í ár, en það er óhætt að segja að byrjunin hjá Skagamönnum hafi ekki verið nógu sannfærandi í ár