Marki fagnað. Ljósm. Jón Gautur

Skagakonur með góðan heimasigur

Skagakonur í meistaraflokki kvenna tóku á móti FHL í annarri umferð Lengjudeildarinnar á laugardaginn, en leikurinn fór fram í Akraneshöllinni. Eftir tap fyrir HK í fyrstu umferð deildarinnar stigu ÍA konur upp og sóttu þrjú stig gegn FHL. Góður heimasigur 1:0 en markið skoraði Alexa Maletis. Skagakonur eru í áttunda sæti með þrjú stig líkt og næstu fimm lið fyrir ofan, en markahlutfall ræður sætaskipan þegar lið eru jöfn að stigum. Deildin er rétt að byrja og gera má ráð fyrir að þessi sigur gegn annars jöfnu liði blási Skagakonum byr í seglin.