Hinn mikli markaskorari Sveinn Svavar Hallgrímsson var með þrennu í leiknum. Ljósm. Skallagrímur:

Skallagrímur með stórsigur á Herði

Fyrsta umferð 5. deildar karla í fótbolta fór af stað í gær. Skallagrímur átti draumabyrjun þegar þeir mættu Herði frá Ísafirði á Kerecisvellinum fyrir vestan. Í hópi Skallagríms eru tíu uppaldir knattspyrnumenn hjá félaginu og voru sjö þeirra í byrjunarliðinu. Skallagrímur lék á alls oddi og komst þeir í 4:0. Borgfirðingurinn Sveinn Svavar Hallgrímsson skoraði þrennu í leiknum. Eftir þessa útreið gerði Hörður mikið áhlaup og náði að koma boltanum yfir marklínuna í tvígang í leiknum, en honum lauk með sigri Skallagríms 4:2 þegar upp var staðið.