Kristján Fjeldsted og Kóróna frá Lyngholti 2 urðu efst í tölti í barnaflokki. Texti og myndir: iss

Úrslit Íþróttamóts Borgfirðings

Íþróttamót hestamannafélagsins Borgfirðings var haldið um helgina. Mjög góð þátttaka var, eða um 100 skráningar. Öll forkeppni var riðin á laugardeginum og svo úrslit í gær. Gaman var að sjá hvað var góð skráning í yngstu aldursflokkunum og verður spennandi að fylgjast með þessum flottu krökkum í framtíðinni. Næst fara svo að hefjast úrtökur hjá öllum hestamannafélögum á Vesturlandi fyrir Landsmót á Hólum í júlí.