Úrslit í stærðfræðikeppni grunnskólanna á Vesturlandi

Hin árlega stærðfræðikeppni grunnskóla á Vesturlandi, sem Fjölbrautaskóli Vesturlands stendur fyrir, fór fram 17. apríl síðastliðinn. Alls tóku 114 nemendur þátt. Sigríður Ragnarsdóttir, deildarstjóri stærðfræðideildar FVA, sá um skipulagningu og framkvæmd keppninnar ásamt stærðfræðikennurum skólans. Keppendur komu frá sex skólum á Vesturlandi. Síðastliðinn laugardag voru veittar viðurkenningar í sal FVA fyrir efstu tíu sætin í 8. 9. og 10. bekk. Einnig voru veitt peningaverðlaun fyrir þrjú efstu sætin. Það er Norðurál sem gefur verðlaunaféð og styrkir þannig framtak FVA myndarlega. „Aðstandendur keppninnar þakka öllum keppendum fyrir þátttökuna, kennurum og Norðuráli fyrir þeirra framlag,“ segir í tilkynningu.