Leirá leynir á sér

Leirá í Leirársveit er lítil en afar skemmtileg lax- og sjóbirtingsá. Áin er tveggja stanga, um sjö kílómetra langt veiðisvæði, með 24 merktum veiðistöðum sem bjóða upp á fjölbreytta og skemmtilega veiði. Leirá hefur lengi verið þekkt fyrir góða sjóbirtingsveiði á vorin og er af mörgum talin ein áhugaverðasta vorveiðiáin í nágrenni Reykjavíkur. Þar gefast oft vænir og stórir sjóbirtingar, sérstaklega neðarlega á vatnasvæðinu. Á haustin er hún einnig frábær kostur, þegar bæði lax og birtingur eru í ánni.