
Útskriftarnemendur Fjölbrautaskóla Snæfellinga brugðu á leik í gær. Að þessu sinni skörtuðu nemendur íþróttabúningum í tilefni dagsins og því mátti sjá spræka íþróttagarpa víðsvegar um Grundarfjörð að leysa hinar ýmsu þrautir. Nemendur fengu svo að koma inn á kennarastofuna í ilmandi vöffluveislu hjá kennurum eins og hefð er fyrir. Útskriftin verður svo 22. maí næstkomandi…Lesa meira








