
Átelur þjóðgarðinn fyrir að leyfa bílastæðagræðgi
Leiðsögumaðurinn Björn Júlíus Grímsson hefur sent opna fyrirspurn til Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls og snýr að því sem hann kallar bílastæðagræðgi. Birtir hann mynd af gjaldtökuskilti á Malarrifi á Snæfellsnesi. Gefum Birni orðið: „Hvernig stendur á því að í þjóðgarðinum okkar fær þetta sóðalega fyrirtæki Parka að vera með rukkun þar sem þeir haganlega setja inn farþegafjölda til að græða sem mest? Þá er ég mest að horfa þarna í þriðja og fjórða gjaldflokkinn það er vita má að lang flestir Sprinterar eru með 19 farþega, en Parka hefur stundað þetta á nokkrum stöðum að hafa viðmiðið rétt undir því til að græða sem mest. Hvernig í ósköpunum samþykkir Snæfellsjökull-Nationalpark svona bull,“ spyr Björn Júlíus.
Þá segir hann: „Fyrir utan það að ég sé íslenskur skattgreiðandi er það virkilega í lagi að þjóðgarðar landsins semji við einkafyrirtæki um gjaltöku á svæðum þar sem mitt skattfé hefur byggt þá upp - og ég þarf þar af leiðandi að greiða þessu einkafyrirtæki fyrir aðgengi að minni náttúru? Ætlum við í alvörunni ekki að fara að gera eitthvað í þessari vitleysu,“ spyr leiðsögumaðurinn.