
Notuð voru 247 tonn af viðgerðarefni til að lagfæra verstu skemmdirnar. Ljósm. ga
Fyllt í stærstu holurnar
Eins og fram hefur komið virðist sem vegir á landinu komi óvenjulega illa undan vetri. Þar sem burðarlag hefur látið undan síga koma því holur í slitlagið, oft með hvassri brún. Í síðustu viku var unnið við viðgerðir á Vestfjarðavegi nærri Búðardal. Fyrirtækið Balatá í Ólafsvík var þá að aðstoða Vegagerðina við verkið. Alls voru notuð 250 tonn af viðgerðarefni til að fylla í stærstu holurnar.