
Sameiginlegur framboðsfundur á Akranesi annað kvöld
Framboðin sem bjóða fram í kosningum til bæjarstjórnar á Akranesi hafa boðað til sameiginlegs framboðsfundar þar sem oddvitar mæta, kynna sig og sín stefnumál og svara spurningum gesta úr sal. Fundurinn mun fara fram í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi, annað kvöld, fimmtudagskvöldið 7. maí klukkan 20:00 og er öllum opinn. Fundarstjóri verður Magnús Guðmundsson.