Fyrsti maí á Snæfellsnesi

Sameyki, Verkalýðsfélag Snæfellinga og Kjölur stóðu fyrir samkomum í Stykkishólmi, Grundarfirði og Snæfellsbæ 1. maí eins og venja er. Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdastjóri Vörðu - rannsóknarstofu vinnumarkaðarins var ræðumaður á öllum stöðum. Þá var boðið uppá tónlistaratriði frá tónlistarskólum staðarins áður en Jón Jónsson kom og skemmti gestum. Að endingu var boðið upp á glæsilegar kaffiveitingar fyrir gesti. Á meðfylgjandi myndum úr Grundarfirði má annars vegar sjá nemendur úr tónlistarskólanum syngja Maístjörnunar og hins vegar hressa drengi bíða eftir kökunum.

Fyrsti maí á Snæfellsnesi - Skessuhorn